30. apríl, 2006
23:50 | Stutt í heimkomu

Búið að vera ágætlega mikið að gera undanfarna daga. Ég og Dagur og hópurinn okkar í Small Biz erum búin að vera að ljúka við lokaverkefnið okkar í tímanum. Það lítur helvíti vel út. Við hefðum alveg getað eytt meirum tíma í það enn það var nóg að gera hjá öllum. Ég er mjög ánægður engu að síður.
Hérna getiði séð myndir af því. Það var helvíti þykkt.
Mynd 1 -
2 -
3
Skólinn næstum búinn. 4 próf eftir. Ég er í raun ekkert stressaður fyrir neitt af þeim því ég er mjög vel staddur í öllum tímunum mínum. Ég þyrfti alvarlega að skíta á mig á þeim til að fá lélega lokaeinkunn.
Ég á að lenda á Ísland morguninn 12. maí, sem er föstudagur. Ég tek mér smá kríu um morguninn og svo er bjór og íslenskur matur.. eflaust grill eitthvað. Mmmmm...
13. apríl, 2006
04:36 | Þessi standar færsla

.. eins og venjulega þá skrifa ég bara þessa venjulegu stuttu færslu þegar ég set myndir á netið. Þetta er hún. Vei vei.
Myndirnar frá Atlanta eru komnar inn. Margar margar margar fyndnar af Robba og nokkrar af Hregga og Haffa.
Kíkið á
þetta.
P.S. ég er sólbrunninn eftir sólbaðið mitt í dag.. gott að vera í sólinni.
1. apríl, 2006
06:12 | NY myndirnar

Setti inn myndirnar frá NY eins og ég hafði lofað að gera þessa helgi. Ég á svo eftir að setja myndirnar frá Atlanta og því fylleríi.
Veðrið er loksins komið og við fáum svona 17-20 stiga hita á daginn.. klassi.
Au revoir.